0 Tours

Ferðin Erlendis

Taktu flugið með Eskimos

Úr smiðju Eskimos er hægt að velja úr fjölbreyttum og spennandi utanlandsferðum sem eru sérsniðnar fyrir hvern og einn hóp. Hver ferð er einstök og sett saman eftir tilefni, fjármagni og þörfum hvers viðskiptavinar, hér er allt mögulegt.

Eskimos hefur starfað sem ferðaskrifstofa í rúm 10 ár og okkar sérsvið eru klæðskerasaumaðar ferðir fyrir  hópa. Við störfum fyrir fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir og sérsníðum ferðir og viðburði erlendis í öllum verðflokkum. 


Vinsælar ferðir eru til dæmis árshátíðarferðir, vinnuferðir fyrirtækja og útskriftarferðir.  

 Við byrjum þar sem aðrar ferðaskrifstofur enda!

Við kynnum okkur hvern hóp vel og vandlega og komumst að því hvaða hugmyndir og kröfur hópurinn hefur til ferðarinnar. Í framhaldi af því komum við með sérhannaðar og hagstæðar tillögur, klæðskerasaumaðar utan um hópinn.

Það getur verið mikil og flókin vinna að skipuleggja viðburði erlendis, góð sambönd og þekking á áfangastað skiptir sköpum til að ekkert fari úr skorðum. Við störfum með reyndum og viðurkenndum samstarfsaðilum um allan heim sem hafa miklar sérþekkingu hver í sínu landi. Það getur verið gott að leggja málin í hendurnar á reyndum fagmönnum og njóta þess að fá sem mest út úr ferðinni.  

Úrval áfangastaða er endalaust og við getum skipulagt ýmsa viðburði til að gera ferðina enn skemmtilegri, ferðin takmarkast eingöngu við tíma og óskir viðskiptavina okkar. Hægt er að setja saman ferðir fyrir allar stærðir hópa og mis fjársterka.

Prófaðu að hafa samband, útkoman gæti komið þér á óvart!

Hefur þú áhuga?

Ef þessi hugmynd á vel við þinn hóp, sendu endilega fyrirspurn og segðu okkur hvað við getum gert fyrir ykkur

Sendu fyrirspurn

Upplýsingar

Árstíð
Allt árið um kring.
Tímalengd
3-5 nætur eða lengur.
Fjöldi
10-600 manns.
Staðir
Evrópa, Ameríka, Asía og Afríka.
Tegundir
Árshátíðarferðir, hvataferðir, vinnufundir, útskriftarferðir og aðrar sérferðir.
Bókunarupplýsingar
info@eskimos.is

Myndir

1 af

This idea has been added to
your backpack.

Your backpack contains all your favourites added from our website. When you are finished, just send us an inquiry through the backpack slider on the right side of the screen and we will get back to you with a suggestion for your custom made Iceland experience.

Browse more tours SEND INQUIRY NOW