Ferðasmiðja Eskimos býr yfir 10 ára reynslu í skipulagningu ferða og ævintýra og hefur skapað skemmtilegar og ógleymanlegar upplifanir fyrir fyrirtæki og hópa af öllum stærðargráðum.
Lífið er annaðhvort djarft ævintýri eða ekkert. -Helen Keller
Við bjóðum uppá frábært úrval af ferðum, leikjum, skemmtunum og ævintýrum sem við klæðskerasaumum fyrir hvert tilefni. Við vinnum með úrvals starfsfólki sem hefur góða persónulega reynslu af öllum þeim valmöguleikum sem við bjóðum uppá.
Í ferðasmiðjunni hönnum við og þróum úrval af skemmtilegum keppnisleikjum, óvissuferðum og allskyns uppákomum sem eru sérhannaðir fyrir fyrirtækjahópa og aðlagaðir að hverju tilefni. Hugmyndabankinn er stór og hvort sem þú ert að leita að stuttri ferð eftir vinnu eða lengri ferð þá getum við smíðað upplifun sem hentar þínum kröfum.
Skoðaðu síðuna okkar og sjáðu alla þá spennandi möguleika sem hér er að finna.