0 Tours

Erlendir gestir

How do you like Iceland?

Mörg fyrirtæki og stofnanir fá erlenda gesti í heimsókn. Þessar heimsóknir hafa margskonar tilgang og tilefni og til að gera sem mest úr tímanum er hægt að skreppa í vel skipulagða og skemmtilega ferð. Því er ekki að neita að alvöru upplifun í góðri ferð eykur góða skapið og velvildina sem getur komið sér vel þegar menn setjast að samningarborðinu.

Góð og vel skipulögð ævintýraferð eflir viðskiptasambandið!

Við hjá Eskimos sérhæfum okkur í upplifunum og ferðum fyrir útlendinga og erum með ferðir fyrir þúsundir erlendra gesta á hverju ári.

Hvort sem um er að ræða ferð með einn erlendan gest í skoðunar- eða ævintýraferð eða að sjá um nokkurra daga dagskrá fyrir hóp af erlendum gestum, getum við sérsniðið ferð sem hentar hverju sinni.

Nú er lag að skoða erlenda heimasíðu Eskimos en þar er að finna fjöldann allan af skemmtilegum ferðum, ævintýrum og upplifunum. 

Mundu: Góð og vel skipulögð ferð eflir viðskiptasambandið til mikilla muna!

Umsagnir viðskiptavina okkar

"Allt stenst sem sagt er!"

Eskimos hefur einstak lega gott lag á að skipuleggja ferðir fyrir erlendu gestina okkar. Alltaf koma gestir okkar jafn ánægðir úr Eskimóa-ferðunum. Vel hannaðar ferðir, tímasetningar, góðir jeppar, klárir leiðsögumenn – og allt stenst sem sagt er.

Brynja Hlín Ágústsdóttir - Össuri hf.

Hefur þú áhuga?

Ef þessi hugmynd á vel við þinn hóp, sendu endilega fyrirspurn og segðu okkur hvað við getum gert fyrir ykkur

Sendu fyrirspurn

Upplýsingar

Árstíð
Allt árið um kring.
Tímalengd
Allt frá hálfum degi og upp í nokkra daga.
Fjöldi
Ekkert hámark né lágmark.
Staðir
Allt Ísland.
Tegundir
Skoðunarferðir, ævintýri og upplifanir.
Bókunarupplýsingar
eskimos@eskimos.is
Annað
Við mælum einnig með að þið skoðið líka erlendu síðuna okkar, þar er að finna fleiri valmöguleika fyrir útlendinga.

Myndir

1 af

This idea has been added to
your backpack.

Your backpack contains all your favourites added from our website. When you are finished, just send us an inquiry through the backpack slider on the right side of the screen and we will get back to you with a suggestion for your custom made Iceland experience.

Browse more tours SEND INQUIRY NOW