0 Tours

Hópefli - Fjörefli

Þjappaðu liðinu saman og bættu starfsandann!

Eskimos er eitt reyndasta hópeflisfyrirtæki landsins, við höfum í  mörg ár skipulagt hópefli fyrir öll helstu fyrirtæki Íslands. Við bjóðum upp á margskonar upplifanir fyrir allskonar tilefni til að byggja og styrkja liðsandann.

Grunnatriði í aðferðafræði Eskimos er að yfirgefa hið daglega vinnusvæði og gera eitthvað skemmtilegt og eftirminnilegt saman í öðru og meira spennandi umhverfi.

Næsta skref er síðan að bæta við leikjum og þrautum í skipulagðri dagskrá sem er hönnuð til að hrista hópinn saman, aðlöguð sérstaklega að hverjum hóp fyrir sig.

Upplifun af þessu tagi lyftir mannskapnum upp og skilur eftir sig góðar minningar sem starfsmenn nærast á í langan tíma. 

Góður starfsandi skapar góðan vinnustað

Hjá Eskimos er margt í boði til að styrkja liðsandann. Allt frá einföldum inniþrautum og verkefnum í hálfsdags afþreyingu yfir í heilsdags ævintýraferð.  Þetta er allt spurning um tíma og hvað hentar við hvert tilefni.

Hér á síðunni má finna margt af því sem í boði er en við lumum líka á ýmsu öðru skemmtilegu sem hægt er að fá nánari upplýsingar um hjá skrifstofu Eskimos.

Eskimos hefur þróað sína eigin útgáfu af hópefli sem við köllum Fjörefli og hefur notið dæmalausra vinsælda, enda lögð áhersla á allt það skemmtilegasta!

Umsagnir viðskiptavina okkar

"Einstaklega gott og vel skipulagt!"

Okkur vantaði gott hópefli til að hrista saman hópinn og tókum skemmtilega fjöreflisleika sem voru haldnir í Laugardalnum í Reykjavík. Einstaklega gott og vel skipulagt og lifir vel í minni gesta. Góðir leikir og allir verulega sáttir. : )

Kristjóna og Valgeir - Stúdentafélagi Háskólans í Reykjavík

Hefur þú áhuga?

Ef þessi hugmynd á vel við þinn hóp, sendu endilega fyrirspurn og segðu okkur hvað við getum gert fyrir ykkur

Sendu fyrirspurn

Upplýsingar

Árstíð
Allt árið um kring.
Tímalengd
Allt frá nokkrum klukkustundum upp í heilan dag.
Fjöldi
Ekkert hámark né lágmark.
Staðir
Allt Ísland.
Bókunarupplýsingar
info@eskimos.is
Annað
Hópefli er ávallt sérsniðið hverjum hóp og tilefni hverju sinni.

Myndir

1 af

This idea has been added to
your backpack.

Your backpack contains all your favourites added from our website. When you are finished, just send us an inquiry through the backpack slider on the right side of the screen and we will get back to you with a suggestion for your custom made Iceland experience.

Browse more tours SEND INQUIRY NOW