Mission Reykjavík er ein mesta skemmtum sem vinnufélagar geta upplifað saman, afar sérstakur og virkilega skemmtilegur leikur sem á sér stað í 101 Reykjavík.
Mission Reykjavík er einskonar þrautaleikur með GPS tæki sem notið hefur gríðarlegra vinsælda. Starfsmönnum er skipt upp í nokkur lið sem síðan keppa við hvert annað.
Þátttakendur bregða sér í hin ýmsu hlutverk og með hjálp GPS tækjanna finna þeir staði í 101 þar sem leysa á margskonar verkefni og þrautir. Hér reynir mikið á útsjónarsemi og sköpunargáfu þátttakenda og þá sérstaklega hversu vel þau undirbúa sig fyrir leikinn.
Hinn umtalaði Mission Reykjavík leikur sem fær fólk til að vinna saman!
Aðal áherslan er lögð á liðsandann og framsetningu hans, þetta skapar mjög góða liðsheild og fjörugar umræður milli vinnufélaga.
Mission Reykjavík hefst á vinnustað nokkrum dögum fyrir leik. Hópnum er skipt upp í nokkur lið, um það bil 6-12 manns í hverju liði.
Í hverju liði er liðsstjóri sem deilir hlutverkum og verkefnum á liðsmenn og það er undirbúningurinn fyrir leikdag sem skiptir sköpum fyrir getu liðsins í leiknum. Nú er lag að hafa valinn mann í hverju hlutverki.
Leikurinn snýst um að finna áfangastaðina, leysa verkefnin og komast á leiðarenda, hraðinn skiptir ekki máli heldur að vanda sig og reyna að leysa sem flest verkefni vel.
Við bjóðum einnig uppá Mission í Hveragerði, Stykkishólmi og á fleiri stöðum á landinu.