0 Tours

Morðgáta

Hlutverkapartý eins og þau gerast best

Morðgátan er hlutverkaleikur sem slegið hefur rækilega í gegn hjá okkur. Hver og einn fær sitt hlutverk og markmið  kvöldsins er að leysa verkefni og reyna þannig að komast að því hver morðinginn er. 

Viku fyrir morðgátukvöldið fá viðkomandi gestir formlegt boð í leikinn. Hver og einn fær hlutverkalýsingu sem útskýrir í smáatriðum til hvers er ætlast af þér í leiknum, hver persóna þín er og hvernig þú tengist fórnarlambinu og öðrum persónum í leiknum. Þátttakendur fá líka ákveðin verkefni til að leysa á morðgátukvöldinu.

Eftir það er túlkun hlutverksins algjörlega frjáls í höndum þátttakenda og það er um að gera að vera eins skapandi og mögulegt er.

Allir eru grunaðir en kannski skilur þú á undan hinum hver hinn raunverulegi morðingi er!

Kvöldið byrjar með fordrykk og gestirnir byrja að ræða við hvern annan til að reyna að afla sér upplýsinga.

Dularfullar persónur koma uppúr kafinu, til dæmis rannsóknarblaðamaðurinn, spillti lögfræðingurinn og eiturlyfjabaróninn sem gera leikinn ógleymanlegan.

Hægt og rólega fara hlutirnir að skýrast og kannski fara einhverjir að skilja hver hinn raunverulegi morðingi er. Mundu að aðeins einn gestanna er morðingi en allir eru grunaðir!

Hægt er að sníða leikinn algjörlega að þörfum fyrirtækisins, hvort sem morðgátan er haldin í sal, á vinnustaðnum eða jafnvel í heimahúsi.

Eskimos hjálpar til við að finna hentuga staðsetningu, aðstoðar fólk við að túlka hlutverkin sín og hefur yfirumsjón með leiknum meðan á honum stendur.

Umsagnir viðskiptavina okkar

Við vorum glimrandi ánægð með Morðgátupartíið hjá Eskimos. Það var vel staðið að undirbúningi og hlutverkin útskýrð á einfaldan máta. Allt stóðst eins og stafur á bók og við skemmtum okkur konunglega í hlutverki ótrúlegustu karaktera. Mæli hiklaust með þessu!
Unnur Magnúsdóttir,
Dale Carnegie

Hefur þú áhuga?

Ef þessi hugmynd á vel við þinn hóp, sendu endilega fyrirspurn og segðu okkur hvað við getum gert fyrir ykkur

Sendu fyrirspurn

Upplýsingar

Árstíð
Allt árið um kring.
Tímalengd
2-3 klst.
Fjöldi
15-50 manns.
Staðir
Margir möguleikar í boði eins og einkasalir, veitingahús, heimahús og hótel.
Bókunarupplýsingar
info@eskimos.is

Myndir

1 af

This idea has been added to
your backpack.

Your backpack contains all your favourites added from our website. When you are finished, just send us an inquiry through the backpack slider on the right side of the screen and we will get back to you with a suggestion for your custom made Iceland experience.

Browse more tours SEND INQUIRY NOW