Við hjá Eskimos sérhæfum okkur í óvissuferðum og höfum verið að þróa þær síðustu 10 árin. Mikil leynd hvílir yfir áfangastaðnum og hið óvænta og skemmtilega er látið ráða förinni!
Eskimos hefur áralanga reynslu í skipulagningu óvissuferða og við eigum gríðarstóran hugmyndabanka fullan af áfangastöðum og ýmsum uppákomum.
Óvissuferðir Eskimos eru sérstakar ferðir, hér vita þátttakendur raunverulega ekkert um hvert verður farið né hvað á að gera. Ferðin er undirbúin í samráði fulltrúa viðkomandi fyrirtækis í fullkominni leynd.
Að vita eða vita ekki, það er spurningin.
Við leggjum okkur fram við að læra um viðkomandi hóp; hvernig hann er samsettur og hvers konar fólk er að fara út í óvissuna með okkur til að geta sérsniðið ferðina fyrir hópinn.
Ferðin getur verið með ýmsu sniði; stutt ferð eftir vinnu, hálfsdagsferð eða heilsdagsferð í nágrenni Reykjavíkur og svo er að sjálfsögðu hægt að fara lengra út á land. Hér koma fjölmargir áfangastaðir til greina!
Algengt er að fyrirtæki vilji fá ferðir eftir vinnu á föstudögum og við bjóðum upp á margar skemmtilegar lausnir þar.
Í raun má útfæra flesta viðburði sem Eskimos býður uppá sem óvissuferð. Skoðaðu síðuna okkar og fáðu hugmyndir, hér eru möguleikarnir endalausir!