Racing Maze er keppnisleikur í anda Amazing Race. Lið keppast við að safna stigum með því leysa þrautir og verkefni á sérstökum stöðum víðsvegar í útjaðri Reykjavikur.
Racing Maze leikurinn okkar er æsispennandi, stórskemmtilegur og skipulagður út í ystu æsar. Keppendur hafa bifreiðar til umráða og fá í hendurnar allskonar tækjabúnað sem tengist leiknum ásamt skemmtilegum verkefnum sem þeir þurfa að leysa.
Við höfum stillt upp ýmsum þrautum á leyndum stöðum víðsvegar í kringum höfuðborgina og með hjálp GPS tækja færðu leiðbeiningar um hvert skal aka til þess að finna viðkomandi staði. Á sumum þessara stöðva tekur á móti þér Eskimói og leggur verkefni og þrautir fyrir liðið, á öðrum stöðvum bíða leiðbeiningar um hvað gera skal.
Uppgötvaðu bestu hliðarnar á þér og liðsfélögunum!
Öll liðin gera sitt besta til að leysa verkefnin eins vel og mögulegt er til að vinna sér inn sem flest stig, hér skapast mikill metnaður og fjör!
Nokkrum dögum fyrir leik er hópnum skipt upp í lið, um það bil 4-12 manns í hverju liði. Liðið velur sér liðsstjóra sem fær verkefnabókina í hendurnar. Nú skiptir öllu að undirbúa sig vel og skipta með sér verkum því það hefur heldur betur sýnt sig í gegnum tíðina að best undirbúnu liðin vinna oftast!
Leiksvæðið er á ýmsum stöðum við útjaðar höfuðborgarinnar en við bjóðum líka upp á Racing Maze á suðurlandi og á Reykjarnesi.
Þessi leikur er frábært tækifæri til að prófa eitthvað nýtt og leyfa fóki að uppgötva nýjar hliðar á sjálfu sér!