0 Tours

Matur & Menning

Áskorun í eldamennsku!

Í matarskóla Eskimos kennum við þér að búa til ýmsa góða sælkerarétti. Við bjóðum upp á skemmtileg námskeið í matargerð, þar sem áhersla er lögð á verklega þáttinn og þú lærir að gera ótrúlegustu rétti undir handleiðslu matreiðslumeistarans.

Það eru nokkrir spennandi möguleikar í boði þegar það kemur að því elda góðan og áhugaverðan mat. Mesta áherslan er lögð á verklega þáttinn til að gestir læri sem mest af reynslunni, hér lærir þú að leyndarmál ljúfra veitinga með því að nota hendurnar. Meistarakokkar á okkar snærum veita góða fræðslu og kenna réttu handtökin.

Þeir segja að fólk sem borðar saman og eldar saman, haldist saman!

Matarskólinn fyrir fyrirtæki eða vinahópa getur verið bókaður einn og sér eða sem hluti af skipulagðri dagskrá á vegum Eskimos. Matarskóli Eskimos er frábær leið til að sameina hópinn, eiga góða stund saman með því að elda góðan mat saman, en fátt sameinar fólk betur en góður matur.  Undir haldleiðslu meistarakokks Eskimos bjóðum uppá Sushi skólann og Tapas gerð í nokkrum útgáfum en einnig erum við með önnur námskeið í matargerð.  Við bjóðum líka uppá skemmtilega vínsmökkun undir handleiðslu okkar færu vínlistamanna.

Við bjóðum stundum upp á opin námskeið fyrir einstaklinga og gjafakort sem við kynnum sérstaklega.