0 Tours

SUSHI skólinn

Öðruvísi og framandi matargerð

Undir handleiðslu sushi-meistara Eskimos lærir þú allt sem þú þarft að vita um sushigerð.  

Margir halda að sushi sé bara hrár fiskur en það er síður en svo tilfellið, hráefnin eru mörg og allir ættu að geta búið til eitthvað sem þeim finnst gott!

Við byrjum á stuttri kynningu um þessa aldagömlu japönsku matarhefð og kynnum svo hráefnin til sögunnar. Sushi-meistarinn sýnir gestum hvernig sushi er púslað saman og kennir þeim að gera nokkrar mismunandi tegundir.

Kennslan er með áherslu á verklega hlutann og sett þannig upp að fólk fái sjálft að prófa til að vita nákvæmlega hver handtökin eru að námskeiðinu loknu.

Ferskt íslenskt hráefni í bland við gamlar japanskar matarhefðir

Það skapast mjög góð stemning á meðan fólk er að rúlla upp nokkrum tegundum af sushi og spjalla saman. Þegar búið er að dást að útkomunni fá gestir að gæða sér á herlegheitunum og taka síðan afganginn með sér heim.

Gestir fá svuntur, hatta og sushimottuna við sushigerðina og í lokin færð þú innkaupalista og leiðbeiningar um hvar og hvernig þú getur gert þetta allt á eigin spýtur.

Við bjóðum uppá nokkrar útgáfur af sushi skólanum sem henta fyrir allskonar tilefni.

Sushi skólinn er frábært hópefli,  fátt sameinar hóp eins vel og að útbúa og borða góðan mat saman.  Við bjóðum einnig uppá sérstök námskeið í sushigerð fyrir einstaklinga á völdum dagsetningum. 


Hefur þú áhuga?

Ef þessi hugmynd á vel við þinn hóp, sendu endilega fyrirspurn og segðu okkur hvað við getum gert fyrir ykkur

Sendu fyrirspurn

Upplýsingar

Árstíð
Allt árið um kring.
Tímalengd
2-4 klst. fer eftir námskeiði.
Fjöldi
15-40 manns í hvert námskeið.
Staðir
Einkasalur Eskimos í Reykjavík.
Tegundir
Sushi skólinn, Sushi Light og Sushi Max.
Bókunarupplýsingar
info@eskimos.is
Annað
Hægt að bjóða mökum með um kvöldið í Sushi veislu.

Myndir

1 af

This idea has been added to
your backpack.

Your backpack contains all your favourites added from our website. When you are finished, just send us an inquiry through the backpack slider on the right side of the screen and we will get back to you with a suggestion for your custom made Iceland experience.

Browse more tours SEND INQUIRY NOW