0 Tours

Tapas gerð

Spænska veislan

Lærðu listina á bakvið góða tapasgerð á námskeiði hjá Eskimos. Spænsku smáréttirnir tapas eru að verða vinsælli með hverju árinu, enda eru þeir fjölbreytt og frábær leið að einstakri matarupplifun.

Á námskeiðinu kennir tapas-meistari Eskimos þér að gera nokkrar tegundir af girnilegum smáréttum.

Tapasgerðin byrjar á stuttri kynningu og í framhaldi kynnum við til sögunnar ýmis hráefni og samsetningar, hér er fjölbreytileikinn er ansi mikill! 

Tapas matarhefðin var upprunlega hönnuð til að fá fólk til að tala saman yfir matnum!

Gestir fá síðan tækifæri til að setja sjálfir saman nokkrar gerðir af smáréttum. Áherslan er lögð á að allir fái að prófa handtökin og læra af eigin reynslu hvernig maturinn er gerður til að geta auðveldlega snarað fram nokkrum spænskum réttum næst þegar gesti ber að garði!

Eftir tapasframleiðsluna og fjöruga tilraunaeldamennsku gæða gestir sér á kræsingunum, ræða saman í rólegheitunum og fá síðan að taka afganinn með sér heim.

Gestir fá líka innkaupalista og leiðbeiningar um hvernig þeir geta endurtekið leikinn sjálfir. 

Við bjóðum uppá nokkrar tegundir af tapasnámskeiðum sem henta fyrir flest tilefni og erum líka með sérstök námskeið fyrir einstaklinga. 

Að læra saman að búa til góðan mat sameinar hópinn og fólk fer ánægt heim eftir að hafa upplifað eitthvað nýtt. 

Hefur þú áhuga?

Ef þessi hugmynd á vel við þinn hóp, sendu endilega fyrirspurn og segðu okkur hvað við getum gert fyrir ykkur

Sendu fyrirspurn

Upplýsingar

Árstíð
Allt árið um kring.
Tímalengd
2-4 klst. fer eftir námskeiði.
Fjöldi
15-40 manns í hvert námskeið.
Staðir
Einkasalur Eskimos í Reykjavík.
Tegundir
Tapas skólinn, Tapas Light og Tapas Max.
Bókunarupplýsingar
info@eskimos.is
Annað
Hægt að bjóða mökum með um kvöldið í Tapas veislu.

Myndir

1 af

This idea has been added to
your backpack.

Your backpack contains all your favourites added from our website. When you are finished, just send us an inquiry through the backpack slider on the right side of the screen and we will get back to you with a suggestion for your custom made Iceland experience.

Browse more tours SEND INQUIRY NOW