0 Tours

7 skref

að árangursríku viðburðaskipulagi

Hver viðburður samanstendur af mörgum ólíkum þáttum og að mörgu þarf að huga við skipulagninguna. Hér er okkar tillaga að því hvernig er best er að standa að þessu skipulagi.  Við setjum þetta upp sem 7 skrefa leiðina sem ættu að tryggja þér góðan árangur í þínu skipulagi.  

1. Góður fyrirvari  Hafðu samband við Eskimos með sem mestum fyrirvara.  Við spyrjum þig spjörunum úr og þarfagreinum þig eftir bestu getu.  

2. Möguleikar Við leggjum höfuð í bleyti, vinnum okkar heimavinnu og í framhaldi kynnum fyrir þér okkar tillögur, hverju við mælum með og þá möguleika sem í boði eru. 

3. Kynning   Þú kynnir hugmyndirnar innanhúss – til skoðunar og ráðagerða innan fyrirtækisins eða hópsins.

4. Pöntun   Þú pantar þann viðburð eða ferð sem þér hentar með góðum fyrirvara.

5. Samningur Við gerum á milli okkar skriflegan samning sem tíundar alla þá þjónustuliði sem eiga við.  Staðfestingargjaldi greitt sem tryggir hag beggja aðila.

6. Staðfesting  Eskimos gengur frá pöntun á allri þjónustu og staðfestir alla liði við þig stuttu síðar.  Allar upplýsingar um viðburðinn afhentar, staðfestar af Eskimos.

7. Afslappað hugarástand Þú slakar á og nýtur þess að taka þátt í vel skipulögðum viðburði þar sem allt er í höndum fagaðila.