0 Tours

Fast samband

Viltu byrja með okkur?

Eskimos býður þér að koma í fast samstarf við okkur.  Með því að vera í „föstu sambandi„ fullnýtir þú alla þá þjónustu og kosti sem því fylgir að vera í föstu sambandi.  Við gerum samstarfssamning okkar á milli og greinum þínar þarfir.  Í framhaldi gerum langtíma áætlum um alla þá viðburði, skemmtun og ferðir sem eru framundan. Við dagsetjum alla liði, skipuleggjum og pöntum alla þjónustu og tryggjum þér hagkvæmustu lausnina. 

Fagfólk Eskimos skipuleggur mikinn fjölda ferða á ári hverju og reynslan sýnir að vinna við viðburði og ferðir er best komin hjá fagfólki eins og okkur. Með samstarfi við okkur geta starfsmenn fyrirtækisins einbeitt sér að eigin starfi og látið Eskimos vinna þá vinnu fyrir ykkur sem við erum best í. Komdu í fast samstarf og tryggðu þér ánægjulegar ferðir og viðburði næstu árin.

Hver viðburður samanstendur af mörgum ólíkum þáttum.   eins og mat, akstri, afþreyingu, aðstöðu og skemmtun. Eskimos sér um skipulagningu viðburða og ferða þar sem öll atriði eru innifalin. Reynslan kemur sér vel þegar óvæntir þættir setja strik í reikninginn, t.d. skyndilegar veðurbreytingar, afbókun þjónustu eða fækkun þátttakenda. Samræming á tímasetningum skiptir einnig miklu máli. Það sparar því tíma, fyrirhöfn og áhyggjur að hafa sem flesta liði hvers viðburðar í höndum Eskimóanna.

Þú hefur samband og við fundum við saman. Við kynnum okkur starfsandann í fyrirtækinu, styrkleika og veikleika og hvað fyrirtækið hefur gert til að viðhalda og byggja upp góðan anda.  Við förum yfir hvernig fyrirtækið hefur skipulagt og staðið fyrir skemmtunum og afþreyingu í fyrirtækinu hingað til og metum hvað má betur fara. 

Í framhaldi komum við með tillögur að skipulagi og leggjum fram okkar hugmyndir hvernig best sé að þessum málum hjá viðkomandi fyrirtæki, ársáætlum eða nokkur ár fram í tímann. Þetta felurí sér atriði eins og td. staðsetning á árshátíðinni og möguleikum, árshátíðarferð erlendis og söfnun fyrir henni. Hugmyndir og tillögur að óvissuferð eða ævintýradegi starfsmanna, dagskrá og hugmyndir að hópefli eða fjörefli sem fyrirtækið stendur fyrir. Árangurstengd hvataferð; eintaklingsbundin, bundin við ákveðna deild eða fyrirtækið í heild. Starfsdag fyrirtækisins sem haldin er árlega eða td. annað hvert ár. Fjölskyldudag, jólaveislur eða jólahlaðborð, þorrablót, vetrarfagnað, haustfagnað, nýársfagnað, vorfagnað og margt annað sem í boði er.  

Við leggjum upp vel skipulagða og tímasetta áætlum til að tryggja að viðkomandi veðburðir og ferðir sem gerðir á þeim tíma sem best er að gera þá Í framhaldi gerum við samstarfssamning sem tryggir þér okkar bestu þjónustu og okkar bestu kjör.  
Komdu í fast samstarf við Eskimóana og njóttu alls þess besta sem við höfum upp á að bjóða. Hafðu samband og við skoðum málin með þér.