0 Tours

Starfsfólk Eskimos

Ekki hika við að hafa samband...

Starfsmenn Eskimos hafa í yfir 10 ár skipulagt viðburði og ferðir af miklum metnaði fyrir öll helstu fyrirtæki landsins. Við byggjum á mikilli reynslu og góðu þjónustulunduðu fólki sem kann allt um að skipuleggja og stjórna ferðum og viðburðum.  

Þú ert í góðum höndum - í okkar höndum!


Friðrik Bjarnason

Framkvæmdastjóri
414-1516
Friðrik er einn af þessum mönnum sem fer með hlutina alla leið. Hann fær 1000 hugmyndir á mínútu, lifir bara á grænmeti sem átti hamingjusamt líf og vinnur 25 tíma á sólarhring. Forfallinn salsafíkill sem nýtur þess að slíta dansgólfum borgarinnar!

Kristinn Guðmundsson

Verkefnastjóri
414-1518
Handboltastjarna, samskiptasnillingur og sérstakur sálfræðingur samstarfsmanna. Kiddi er ljúfur ungur maður sem nýtur langra gönguferða á ströndinni og finnst gott að drekka kanilkaffi við arineld - einn eftirsóttasti piparsveinn landsins!

Joshua Friðriksson

Skipulag og umsjón
414-1517
Josh er yngsti en jafnframt mest sjarmerandi starfsmaður fyrirtækisins. Þessi ungi maður getur brosað sig út úr hvaða aðstæðum sem er. Þrátt fyrir afleitan tónlistarsmekk er hann klárlega á hraðri uppleið í lífinu!

Ragnar Bjarnason

Fjármál og skrifstofustjóri
414-1510
Raggi er okkar eigin eldhressi sushisnillingur og sér um allt sem tengist bókhaldi, skipulagi og ábyrgð. Hann er samt passlega óútreiknanlegur og festist ekki á filmu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Þóra Bjarnadóttir

Þegar Þóra bjó í mið-Ameríku þróaði hún með sér yfirnáttúrulega hæfni til að stjórna því óstjórnlega; hún vinnur fimmfalda vinnu en nær samt að vera skemmtileg, ala upp apana á skrifstofunni og á óskiljanlegan hátt fara í spinning í hádeginu. Ofurkona!

Einar Óskar Sigurðsson

Markaðsstjóri
Einar er sveitastrákur úr Vesturbænum. Hann getur ekki sagt neitt án þess að það sé fyndið og akkúrat núna er hann mjög líklega í peysu sem einhver skilaði af augljósum ástæðum í rauða krossinn. Snillingur í barneignum og markaðsmálum!

Jean-Didier Raoul

Jean eða Sjonni er franskur og þar af leiðandi siðmenntaðasti starfsmaður Eskimos. Hann er líka sá sem veit mest um Ísland, eins vandræðalegt og það er fyrir okkur hin! Ef þig vantar gott skipulag eða hágæða svartan húmor þá talarðu við þennan mann.

Elísa Gyrðisdóttir

Viðburðir
414-1515
Elísa er kamelljón skrifstofunnar, hún sinnir meðal annars leiðsögustörfum og brandarasmíði ásamt jógakennslu fyrir aðra starfsmenn. Mikil áhugamanneskja um glysrokk níunda áratugarins og appelsínusúkkulaði.

Stefanía

Morðgátur og viðburðir
414-1515