0 Tours

Starfsmannastefna Eskimos

Afhverju gerum við hlutina svona?

Eskimos er framsækið fyrirtæki og starfsmenn okkar spila þar lykilhlutverk. Markmið Eskimos er að hafa hæfa og áhugasama starfsmenn þar sem eldmóður og metnaður skiptir miklu máli. Starfsmenn okkar verða að taka fulla ábyrgð á starfi sínu. Útsjónarsemi, frumkvæði og frjósöm og skapandi hugsun skipta miklu máli í framþróun Eskimos.

Hjá okkur eru starfstarfsmennirnir númer eitt.  

Við styðjum við bakið á okkar mönnum og gerum það sem í okkar valdi stendur til þeir geti vaxið í starfi, jafnt sem persóna og sem starfsmaður. Hafi Eskimói ekki þá þekkingu sem til þarf, gerum við allt sem við getum til að veita viðkomandi starfsmanni þá þjálfun sem hann þarfnast. Við leggjum áherslu á að skapa skemmtilegan og áhugaverðan vinnustað og að starfsumhverfi okkar einkennist af góðum starfsanda, jákvæðu viðhorfi og mjög fjölbreyttri vinnu. Þetta tryggir sterka, örugga og jákvæða starfsmenn að það er einmitt þannig sem við viljum að okkar viðskiptamenn upplifi okkar starfsmenn.

Hafir þú áhuga á að starfa hjá Eskimos, sýndu það frumkvæði að senda okkur starfsferil og eitthvað fleira um þig á starf@eskimos.is Upp á borð til okkar koma margs konar verkefni og oft vantar okkur gott fólk hvort sem um er að ræða í einstök verkefni, tímabundna vinnu eða fasta vinnu. Sé laus staða (getur gerst með stuttum fyrirvara) og ef okkur hefur litist vel viðkomandi þá tölum við saman.  Svo einfalt er það.  

Láttu í þér heyra!