Eskimos hefur góða reynslu af stjórnun og skipulagi hverskonar viðburða. Undanfarin 10 ár höfum við undirbúið, skipulagt og stjórnað óteljandi viðburðum fyrir mörg helstu fyrirtæki landsins.
Að halda viðburð án viðburðastjórnunar er eins og að spila landsleik án þjálfara.
Viðburðaumsjón Eskimos tekur að sér fjölbreytt verkefni, við sjáum til dæmis um skipulagningu og stjórnun á árshátíðum, starfsdögum eða fjölskyldudögum fyrirtækja, vorhátíðum, vetrarfögnuðum, afmælum og hverskonar veislu-og hátíðahöldum.
Hvort sem viðburðurinn er lítill og einfaldur eða stór og flókinn er hann í reyndum og öruggum höndum hjá Eskimos, við getum bæði séð um heildarskipulag eða haft umsjón með einstökum liðum viðburðarins.
Það getur verið vandasamt að undirbúa og skipuleggja vel heppnaðan viðburð. Lykilatriði er að hafa góðan fyrirvara til að viðburðastjórnendur hafi betri möguleika á að tryggja besta starfsfólkið, skemmtikraftana og bestu aðstöðuna á þinni óskadagsetningu.
Í viðburðasmiðju okkar er að finna úrval af hugmyndum, lausnum og góðu starfsfólki sem hefur mikla reynslu og þekkingu í stjórnum og skipulagningu viðburða. Við störfum með aðilum sem við treystum og þekkjum vel, hvort sem um er að ræða skemmtikrafta, veisluþjónustu eða aðra þjónustuveitendur þá veljum við aðila sem hafa reynst okkur vel. Við leggjum áherslu á að kanna vel alla aðstöðu og þjónustu sem er í boði og leggjum mikla vinnu í að tryggja að hver viðburður verði eins vel heppnaður og framast er unnt.