Eskimos hefur í mörg ár skipulagt árshátíðir fyrir fyrirtæki og stofnanir. Vel heppnuð árshátíð veltur á mörgum smáatriðum og það er gott að geta lagt þau í hendur Eskimos.
Árshátíðin er hin eina sanna uppskeruhátíð fyrirtækisins og því mikilvægt að vanda til verka. Fyrirtækið býður starfsmönnum til hátíðarhalda og þakkar þeim fyrir starfsárið sem var að líða. Við höfum áralanga reynslu í skipulagningu árshátíða og viðburða fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Vel skipulögð árshátíð skilar sér margfalt til baka!
Með því að hafa samband tímanlega tryggir þú betri þjónustu og fleiri valmöguleika þegar kemur að því að velja staðsetningu, skemmtikrafta, tónlistarfólk og veislustjóra. Hafðu samband strax í dag og kannaðu hvaða möguleikar eru í boði!
Eskimos eru í samstarfi við fjölmarga virta aðila sem sérhæfa sig í veisluhaldi og við getum skipulagt alla liði hátíðarinnar niður í smáatriði.
Við bjóðum upp á margskonar útgáfur af árshátíðum. Möguleikarnir eru endalausir, hvort sem það hentar best að vera í bænum, fara út á land með gistingu eða jafnvel erlendis þá erum við með lausnina fyrir þig og þitt fyrirtæki.
Eskimos getur séð um heildarskipulag eða skipulagningu einstakra liða sem snúa að viðburðinum. Það spara þér tíma, fyrirhöfn og áhyggjur að hafa sem flesta liði í höndum eskimóanna.
Vel hugsuð og skipulögð árshátíð skilar sér margfalt til baka!