Eskimos sér um skipulagningu á vinnufundum í bland við gott hópefli. Vel skipulagðir vinnufundir í umhverfi utan skrifstofunnar eru oft markvissari og árangursríkari.
Vinnufundir með Eskimos eru haldnir utan við daglegt starfsumhverfi fyrirtækisins, oft á áhugaverðum stöðum fyrir utan höfuðborgarsvæðið.
Stundum þarf að gera eitthvað nýtt til að fá nýjar niðurstöður!
Við bjóðum upp á góða fundaraðstöðu, allar veitingar og jafnvel gistingu. Þar að auki getum við sett saman gott hópefli eða aðra afþreyingu eftir afkastamikinn fundardag.
Slíkir fundir, vel undirbúnir og skipulagðir eru markvissir og hafa jákvæð og uppbyggjandi áhrif á fyrirtæki og starfsemi þeirra.
Það styrkir hópinn að komast burt úr daglegum ramma fyrirtækisins og funda á nýjum stað. Við bjóðum upp á marga skemmtilega staði mislangt frá höfuðborginni, stóra sem smáa, venjulega og óvenjulega.
Við þessar aðstæður fara starfsmenn í annað skap, fólk er frjálslegra og opnara og oft koma upp sjónarmið og hugmyndir sem að öllu jöfnu koma ekki fram á hversdagslegu fundunum.
Eskimos getur skipulagt nánast hvernig vinnufundi sem er og við eigum gríðarstóran hugmyndabanka með allskonar uppákomum sem henta vel fyrir þessi tilefni.